Komin er ný fyrirspurn, Höfundar undir Nemandi þar sem listaðir eru upp höfundar, sem skráðir eru á próf og verkefni nemenda, ásamt fjölda tilfella. Áhugavert er að sjá hvaða höfundar eru mest spilaðir á prófum og verkefnum. Þegar listinn er skoðaður má einnig sjá mismunandi framsetningu á sumum höfundum vegna prentvillu í nafninu eða mismunandi skammstafana og punktanotkunar. Stundum er bil á eftir punkti sleppt og stundum ekki.
Þessar prentvillur og misræmi á framsetningu höfunda er nú hægt að lagfæra með aðgerðinni Nemandi / Uppfæra höfund. Hægt er að setja inn röngu framsetninguna í frá svæðið og þá réttu í til svæðið og smella svo á Framkvæma hnappinn til að leiðrétta á öllum prófum og verkefnum.