Aðeins próf með stöðuna Lokið birtast nú í Þjónustugáttinni. Hægt er að keyra aðgerðina „Próf->Loka öllum prófum í stöðunni Í lagi“ til að loka öllum prófum sem eru í stöðunni Í lagi þannig að þau birtist í gáttinni. Eftir að búið er að loka prófum þá geta kennarar ekki lengur breytt þeim.
Einfalt er að sjá hvað birtist í gáttinni með því að smella á fyrsta táknið sem er fyrir Þjónustugáttinna á síðunni Nemandi undir Upplýsingar 20XX-20XX.