Undir stillingar og námsmat er nú hægt að stilla hvaða prófgerðir eru virkar í kerfinu. Einnig er hægt að stilla fyrir hvaða námsgreinar, megin áfanga (G, M eða F) og próftegund (Áfangapróf, Vorpróf, Tónfræðapróf) prófgerðin er fyrir. Með því að stilla þessa hluti er einfaldara fyrir kennara að velja rétta prófgerð á próf.
Prófgerð segir til um atriði og vægi á prófi. Prófgerð er hægt að velja í fellilista eftir að próf hefur verið stofnað á síðunni Próf.