Komið er nýtt hlutverk í kerfið, Nemendaumsjón sem gefur notanda heimild til þess að breyta nemendum í kerfinu. Samfara þessari breytingu hefur nafninu á hlutverkinu Deildarstjóri verið breytt í Nemendaeftirlit, en það gefur einungis les heimildir á alla nemendur. Einnig er nú möguleiki á að notandi geti haft fleiri en eitt hlutverk sem opnar fyrir þann möguleika að bæta við fleiri hlutverkum ef þarf.
Eftirfarandi hlutverk eru nú til í kerfinu
- Skólastjórn: Hefur allar heimildir
- Ritari: Sama og skólastjórn nema ekki heimild til þess að skrá hlutverk á notendur
- Nemendaumsjón: Getur breytt öllum nemendum
- Nemendaeftirlit: Getur skoðaða alla nemendur
- Kennari: Hefur aðeins aðgang að sínum nemendum