Í vefgátt forráðamanna geta forráðamenn nú skráð sig inn í kerfið með Íslykli, rafrænu skilríki í síma eða rafrænu skilríki á korti. Slóðin er https://innskraning.island.is/?id=schoolarchive.net.
Í vefgáttinni geta forráðamenn skoðað helstu upplýsingar, skólagjöld, stundaskrá, skólasókn, áfangapróf, verkefni og námsmat. Forráðamaður getur breytt heimilisfangi, netföngum og símanúmerum. Einnig er möguleiki í vefgáttinni að staðfesta áframhaldandi skólavist, fyrir þá skóla sem það vilja.
Í kerfinu má sjá síðuna sem forráðamenn fara inn á með því að smella á eftirfarandi tákn, sem er að finna á síðunni Forráðamaður undir Börn.