Eftirfarandi gluggi birtist þegar smellt er á táknið í uppsetningu
á flipanum skólaár í þeim tilgangi að stofna nýtt skólaár.
Þá er hægt að stilla hvaða atriði afritast yfir þegar nýtt skólaár er stofnað. Hægt er að velja eftirfarandi:
- Afrita virka nemendur á nýtt skólaár (Þeir sem eru með skráð Nei í [Vill halda áfram námi?] verða ekki afritaðir). Þeir sem eru að nota rafræna umsókn um skólavist fyrir alla nemendur líka þá sem halda áfram þurfa ekki að afrita virka nemendur yfir á nýtt skólaár, því hver og einn afritast yfir þegar rafræn umsókn er samþykkt.
- Afrita kennslu (einkatíma og hóptíma) yfir á nýtt skólaár. Með því að afrita kennslu yfir á nýtt skólaár þarf að eyða og breyta á nýja skólaárinu. Ef kennsla er ekki afrituð yfir á nýja skólaárið þarf að handfæra alla einkatíma og hóptíma.
- Afrita stundaskrá yfir á nýtt skólaár. Afrita stundaskrá þurfa aðeins þeir að nota sem eru að útbúa nýtt skólaár fyrir vorönn.
- Flytja óloknar umsóknir yfir á nýtt skólaár. Þeir sem láta endurnýja umsóknir á hverju ári þurfa ekki að flytja óloknar umsóknir yfir á nýja skólaárið.